

Steinasafn Petru
Á Stöðarfirði er Steinasafn Petru. Petra Sveinsdóttir fór ung að safna steinum og gerði það alla ævi. Þegar eiginmaður hennar Jón Ingimundarson lést langt fyrir aldur fram, hélt Petra á áfram að safna steinum og ýmsu öðru og nú er talað um safnið sem stærsta steinasafn veraldar í einkaeigu. Það er opið frá vori til hausts og er sannarlega heimsóknar virði.


Gallerí Snærós
Gallerí Snærós er eitt elsta listagallerí landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Það er stofnað af hjónunum Sólrúnu Friðriksdóttur og Ríkharði Valtingojer sem ráku það saman um árabil. Eftir að Ríkharður lést, hefur Rósa dóttir þeirra hjóna komið meira að rekstrinum og nú er hægt að sjá og kaupa þar myndlist eftir þau öll og fleiri auk skratgripa, vefnaðar og annara listmuna.


Kaffi Kvörn
Sum segja að hér fáist besta kaffi á Íslandi. Hér verður ekki þrætt um það. Á Kaffi Kvörn er hægt að fá kaffi í áskrift og það er sent hvert á land sem er. Þar er líka gott að setjast niður og spjalla. Kaffi Kvörn er staðsett í Sköpunarmiðstöðinni.


Brauðdagar deighús
Ef brauðið er frá Brauðdögum deighúsi, er það gott. Heimsending tvisvar í viku um allt Austurland.


Sköpunarmiðstöðin
Sköpunarmiðstöðin er í húsi sem áður var frystihús staðarins. Því var bjargað frá niðurrifi af hugsjónafólki og nú er þar öflun listastarfsemi þar sem listafólk kemur til lengri eða skemmri dvalar. Þar eru haldin námskeið og sýningar. Sköpunarmiðstöðin er ein af Menningarmiðstöðvum Austurlands.


Salthússmarkaðurinn
Salhússmaraðurinn dregur nafn sitt af Salthúsinu en þar hóf markaðurinn starfsemi sína. Síðan flutti markaðurinn inn í Samkomuhúsið og er opinn þar á sumrin. Þar er selt handverk heimananna og brottfluttra. Tilvalinn viðkomustaður fyrir þau sem vilja kaupa búsahöld. lopapeysur, sultur og hlaup og margt, margt fleira.


Studio Silo
Studio Silo er upptökuver staðsett í Sköpunarmiðstöðinni. Þar er hægt að taka upp hliðrænt og stafrænt og þar eru pressaðar vinylplötur. Ef þú ert að fara að gefa út tónlist ættir þú endilega að leiða hugann að því hvort Studio Silo sé ekki góður kostur. Sem það er.


Sundlaug Stöðvarfjarðar
Sundlaug Stöðvarfjarðar er skemmtileg og barnvæn laug í fallegu umhverfi. Þar er gott að slappa af, fara í heita pottinn og skola af sér ferðarykið. Laugin er opin frá maí og fram í september.
