Samfélagssíða

Þessari vefsíðu er ætlað að vera vettvangur fyrir samfélagið á Stöðvarfirði. Hér geta þau sem vilja komið afurðum sínum á framfæri, hvort heldur þær eru menningarlegar, ætilegar eða eitthvað annað. Einnig verður reynt að segja frá því helsta sem fer fram á Stöðvarfirði. Tekið skal fram að ekki verður birt efni sem er særandi eða meiðandi.