Starry night

  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow

Við



Sigling um Norðfjarðarflóa Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Fimmtudagur, 04 júní 2009 09:37

Þriðjudaginn 12. maí fóru allir nemendur í 6. bekk í Fjarðabyggð í siglingu um Norðfjarðarflóa.

Skólarnir fóru í tveimur hópum, annars vegar voru það nemendur frá Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði og hins vegar nemendur frá Eskifirði og Neskaupstað.

Lagt var af stað í rútu frá Stöðvarfirði kl. 8:45 og nemendur hinna skólanna tveggja síðan teknir upp í.  Siglt var frá Neskaupstað í blíðskaparveðri á bátnum Skrúð inn í Hellisfjörð og hann skoðaður og þaðan inn í Viðfjörð. Síðan sigldum við fyrir Barðsnesið og sáum Gerpi austasta annes Íslands. Að því búnu snerum við til baka og sigldum til Mjóafjarðar og komum þangað um kl. 11:30.

Í Mjóafirði var tekið vel á móti hópnum. Margrét skólastjóri Grunnskólans í Mjóafirði fræddi okkur um fjölda íbúa í firðinum og aldursdreifingu þeirra. Að því loknu fórum við í gönguferð um byggðina. Við fórum m.a. á bæ þar sem við skoðuðum kindur, hænur, kanínur, naggrísi og hesta. Í Mjóafirði eru einnig nokkrir hundar og þeir fylgdu hópnum um allt og nutu samvista við krakkana. Eftir gönguferðina og dýraskoðunina fór hópurinn aftur niður að grunnskólanum, þar voru borðaðar grillaðar pylsur og drukkið kók í boði Fjarðabyggðar.

Veðrið lék við okkur allan tímann, smá gola, sólin skein glatt og hitinn var um 17 gráður inni í fjörðunum. Margir náðu sér í nokkrar freknur og aðrir roðnuðu í andliti.

Ferðin var í alla staði frábær og krakkarnir til fyrirmyndar. Það má með sanni segja að allir komu þreyttir, sælir og sólbakaðir heim.

Myndir úr ferðinni er að finna hérna.