Venjulegur skóladagur verður miðvikud. 16. maí. (námsmatsdagur í dagatali)
Skila þarf öllum bókum í lok prófanna.
Fjórir vordagar verða á lokadögunum og lýkur með afhendingu einkunna þriðjudaginn 29. maí. Dagskrá vordaganna er ekki orðin endanleg, en stefnt er að eftirfarandi dagskrá.
Dagur 1. Gönguferð
Dagur 2. Dagsferð í rútu
Dagur 3. Skiltagerð og Nýgræðingur
Dagur 4. Balahlaup, dorgveiði o.fl. Hátíðarverður á Kaffi Steini kl. 12.10.
Afhending verðlauna og einkunna. Snyrtilegur klæðnaður.
Ef smellt er á myndina hér að neðan, færist þú inn á myndamöppu með myndum frá Keppnisdögum. Þess skal hér getið að lið sem kallaði sig Hverjir? báru sigur úr býtum að þessu sinni.
Nú standa yfir Keppnisdagar í skólanum og einn liður þeirra er hæfileikakeppni. Yfirleitt er endað á þeim lið en núna var hann hafður fyrstur af ýmsum ástæðum. Myndbandið hér að neðan var tekið af nemendum þar sem þeir sýna hæfileikana.
Í leikþáttunum vorum við á öldrunarstofnun og þar varð að vera afi og eða amma, starfsmaður og fjölskylda í heimsókn.
Fulltrúi okkar í Stóru upplestrarkeppninni, hún Jónína Guðný Jóhannsdóttir, stóð sig aldeilis með prýði og hafnaði í öðru sæti en lokahátíð keppnninnar fyrir okkar svæði, fór fram á Eskifirði í gær. Það eru nemendur úr 7. bekk sem keppa fyrir hönd grunnskóla landsins en hver skóli velur sína fulltrúa með forkeppni. Sóley Arna Friðirksdóttir frá Eskifirði sigraði og Jökull Logi Sigurbjarnarson, einnig frá Eskifirði, varð þriðji.
Öll börnin sem þátt tóku, stóðu sig prýðlegai, enda rekur fólk ekki minni til að dómnenfnd hafi verið jafn lengi að komast að niðurstöðu og í gær.
Sóley Arna, Jónína Guðný og Jökull Logi með sigurlaunin sem m.a. eru ávísun á bækur frá Eymundsson.
Síðastliðinn þriðjudag fór fram lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á meðal nemenda í 7. bekk hér í Grunnskólanum á Stöðvarfirði. Það er að segja, Eyþórs Ármanns Jónassonar, Friðriks Júlíusar Jósefssonar og Jónínu Guðnýjar Jóhannsdóttur.
Í dómnefnd voru Anna María Sveinsdóttir, Valdimar Másson og Þóroddur Helgason.
Skemmst er frá því að segja, að Jónína Guðný bar sigur úr býtum og verður því fulltrúi skólans þegar keppt verður í upplestri á Eskifirði 21. mars. Við óskum Jónínu til hamingju með sigurinn og öllum þátttakendum þökkum við skemmtilegan og góðan lestur.
En nokkrar myndir segja meira en langur upplestur, eða hvað?
Foreldrafélag grunnskólans fyrirhugar að halda þorrablót föstudaginn 10. febrúar n.k. kl. 18:00 í grunnskólanum. Eins og venjulega mega nemendur bjóða venslafólki sínu. Til að panta megi hæfilegt magn matar, eru nemdur beðnir um að taka fram hve mörgum þeir ætli að bjóða. Aðgangseyrir er kr. 2500 fyrir fullorðna en kr. 1000 fyrir grunnskólabörn og frítt er fyrir yngri börn. Við minnum á að skila verður skráningamiðum, sem nemendur fengu með sér heim í síðustu viku, fyrir föstudaginn 3. febrúar.
Krakkarnir sem tóku heimilisfræði sem valgrein, kokkuðu upp dýrinds hádegisverð í dag. Því miður getum við hvorki fært ykkur lykt né bragð hérna en við getum sýnt ykkur kokkana og krásirnar.
Nemendur og Hanna Gréta heimilsfræðikennari (stendur fyrir miðju).