Starry night
Við
| Ævintýraferð 9. og 10. bekkjar |
|
|
|
| Skrifað af Administrator | |||
| Miðvikudagur, 03 júní 2009 16:21 | |||
|
Krakkarnir í 9. og 10. bekk fóru í mikla og vel skipulagða ævintýraferð á dögunum. Farið var í Helgustaðanámuna á Eskifirði og hún skoðuð undir leiðsögn Sævars á Mjóeyrinni. Settir voru upp hjálmar og síðan var farið eins langt inn í námagöngin og hægt var. Eftir þetta var haldið út Eskifjörðinn og bæjarstæði einokunarverslunarinnar í Breiðuvíkurkaupstað (Útstekk) skoðað ásamt leiði franska lautinantsins sem varð fyrir voðaskoti á lóuveiðum seint á 19. öld. Ekki var öllu lokið á Eskifirði, því næst var stoppað við myndasýningu þar sem hvalstöðin var og svo endað á því að koma við í Randulfssjóhúsi þar sem farið var í skeljafjöru á opnum bátum með utanborðsmótor. Að endingu fengu allir sér grillaðar pylsur áður en haldið var í næsta ævintýri. Næsta ævintýri átti sér stað á Fáskrúðsfirði en þar var farið með björgunarsveitarmönnum í loðnubræðsluna og sigið fram af ca. 20 metra háum tönkum. Krökkunum þótti flestum þetta afbragðs skemmtun og fóru flest þeirra tvær ferðar. Þegar þessu var lokið var komið við í sjoppu þar sem karkkarnir fengu sér sjeik áður en rennt var til Stöðvarfjarðar í heita pottinn. Á Stöðvarfirði var komið við í heita pottinum í sundlauginni áður en farið var í gömlu kirkjuna. Þar fóru stelpurnar á stutt námskeið í förðun á meðan strákarnir fóru heim til Þórönnu og bjuggu til pizzur. Eftir að í kirkjuna var komið aftur, voru pizzurnar borðaðar og spilað frameftir. Í Bítið morguninn eftir (7:00) voru nemendur reknir á fætur með harðri hendi og hafragraut skóflað á diska. Eftir þetta mikla hafragrautsát var tekið saman og haldið í skólann þar sem nemendur lærðu fræðin í gríð og erg hæstánægð með velheppnaða ævintýraferð. Við viljum þakka öllum sem hjálpuðu til við að gera þessa ferð svona skemmtilega. Hérna eru fleiri myndir úr ferðinni.
|


