|
Skrifað af Administrator
|
|
Þriðjudagur, 31 janúar 2012 13:02 |
Foreldrar og forráðamenn athugið!
Foreldrafélag grunnskólans fyrirhugar að halda þorrablót föstudaginn 10. febrúar n.k. kl. 18:00 í grunnskólanum. Eins og venjulega mega nemendur bjóða venslafólki sínu. Til að panta megi hæfilegt magn matar, eru nemdur beðnir um að taka fram hve mörgum þeir ætli að bjóða. Aðgangseyrir er kr. 2500 fyrir fullorðna en kr. 1000 fyrir grunnskólabörn og frítt er fyrir yngri börn. Við minnum á að skila verður skráningamiðum, sem nemendur fengu með sér heim í síðustu viku, fyrir föstudaginn 3. febrúar.
Foreldrafélag Grunnskólans á Stöðvarfirði.
|