Starry night
Við
| Balahlaup og hjólaþrautir |
|
|
|
| Skrifað af Administrator | |||
| Föstudagur, 28 maí 2010 14:00 | |||
|
Í dag fór fram Balahlaup Grunnskólans á Stöðvarfirði, en þá hlaupa nemendur einn hring um Balann og er hlaupið orðinn fastur viðburður á vordögum.
Á Yngsta stigi sigraði Kolbrún Björk Jónasdóttir í flokki stúlkna en hún hljóp á 3 mínútum og 17 sekúndum. Í flokki drengja á Yngsta stigi bar Máni Þorsteinsson sigur úr býtum en hann hljóp á 3 mínútum og 10 sekúndum. Á miðstigi vann Jónína Guðný Jóhannsddóttir kynsystur sína með því að hlaupa hringinn á 3:08 en Friðrik Júlíus Jósefsson var fljótastur drengja á 2:47. Magda Malgorzata Pabisiak vann í flokki stúlkna á Elsta stigi en hún hljóp á 2:48 og Sólmundur Aron Björgólfsson vann flokk drengja með því að hlaupa umhverfis Balann á 2 mínútum og 28 sekúndum. Einnig var keppt í hjólaþrautum og var keppt á tíma en fyrir hverja villu sem keppendur gerðu, var fimm sekúndum bætt við tímann. Máni Þorsteinsson vann í flokki drengja á Yngsta stigi og var með tímann 1:31,18. en í flokki stúlkna sigraði Rakel Þorsteinsdóttir á 1:29,40. Á Miðstigi sigruðu þau Jóhannes kristinn Hafsteinsson á 1:23,53 og Arney Hildur Margeirsdóttir sem fór brautina á 1:40,04. Síðastir kepptu nemendur Elsta stigs og sigurvegari í flokki drengja varð Erlingur Snæþór Oddsson á 1:05,45 og Jórunn Dagbjört Jónsdóttir varð fljótust stúlkna á 1:22,65. Hérna eru svo myndir frá deginum og ef þið viljið skoða myndirnar hverja fyrir sig, nægir að smella á "slædsýninguna" og mappan með þeim mun opnast líkt og fyrir töfra.
|


