|
Skrifað af Administrator
|
|
Fimmtudagur, 29 apríl 2010 10:32 |
|
Nemendur á Elsta stigi sendu öllum Stöðfirðingum sumarkveðju fyrir sumardaginn fyrsta. Þau teiknuðu glaðleg kort sem þau máluðu og lituðu. Síðan völdu þau, úr bókum og af netinu, uppbyggileg spakmæli og tilvitnanir fyrir kortin.
Verkefni þetta var unnið í lífsleikni og hugmyndin sú að senda fólki jákvæðar og uppörvandi hugsanir til að vega aðeins upp á móti fremur neikvæðum umræðum og fréttaflutningi, vegna kreppu og erfiðs þjóðfélagsástands.
|