Vikuna 23. - 27. nóv. n.k. viljum við bjóða alla foreldra/forráðamenn til okkar í skólann á skólatíma. Það geta menn sest í tíma hjá okkur og fylgst með því sem fer fram innan veggja kennslustofunnar.
Kennarar og nemendur halda sínu striki og mega foreldrar/forráðamenn koma inn í hvaða kennslustund sem er. Kennarar hafa ekki próf þessa viku.
Í dag komu Rússíbanar í heimsókn til okkar. Tilefnið var Tónlist fyrir alla en undir þeim merkjum ferðast tónlistarmenn um landið og spila í skólum vítt og breitt. Svo skemmtilega vill til að í dag er Dagur íslenskarar tungu á afmæli Jónasar Hallgrímssonar (og Viktors Breka) og þótt tónlistin væri héðan og þaðan úr veröldinni, var næstum eins og Jónas væri á svæðinu.
Sé smellt hérna (með mús en ekki fingrum), opnast líkt og fyrir töfra myndaalbúm með fleiri hreyfðum myndum af Degi íslenskrar tungu og tónlistar fyrir alla. Sérdeilis skemmtilegt eftirmiðdegi.
Vegna veikinda undanfarið og fyrirsjáanlegra forfalla á næstunni, höfum við ákveðið (í samráði við nemendur) að fresta árshátíðinni um óákveðinn tíma. Hún átti að vera þ. 12 nóv. n.k.
Líklegast verður hún í mars eða apríl og þá í tengslum við opna daga.
Í lífsleiknitíma þann 29. sept. fóru nemendur elsta stigs ásamt umsjónarkennara á myndlistarsýninguna „Steinn og Fjall“ sem nú stendur yfir í Gallerí Snærós.Þar sýnir Zdenek Paták teikningar og er myndefnið aðallega sótt í fjallshlíðarnar á Stöðvarfirði.
Krakkarnir voru búnir að semja spurningar fyrirfram til þess að taka viðtal við listamanninn og byrjuðu á því að spyrja hann um uppruna hans og listnám. Fengu að vita að hann er fæddur og uppalinn í borginni Prag í Tékklandi og þar er töluð tékkneska. Hann hefur haft áhuga á myndlist frá því hann var lítill og byrjaði sitt listnám í menntaskóla. Fór síðan í Listaháskólann í Prag og útskrifaðist þaðan sem grafískur hönnuður. Var alveg 11 ár í listnámi. Hann kom til Íslands 2004 og stundaði þá nám sem gestanemi við Listaháskólann í Reykjavík.Þau spurðu hann um tæknileg atriði varðandi myndirnar og fengu að vita að hann notaði aðallega blýanta og kol við gerð þeirra og smá vatn. Einnig fengu þau að vita að það tók hann einn og hálfan mánuð að teikna stærstu myndina.Hann sagði þeim síðan nánar frá myndunum og hvers vegna hann teiknaði þær. Hann upplifir náttúruna hér svo sterkt og fann mikla löngun hjá sér til þess að teikna þessi stórbrotnu form í landslaginu sem eru jafnframt svo abstrakt.
Þeim lék forvitni á að vita hvernig honum líkaði að búa á Íslandi en Zdenek hefur verið búsettur á Stöðvarfirði sl. 2 ár. Hann lét vel af því og finnst að hér séu allskyns möguleikar, mikið frelsi og gott að vera í svona nánum tengslum við náttúruna.
Foreldrafundur verður haldinn í Grunnskólanum á Stöðvarfirði miðvikudaginn 4. nóvember næstkomandi kl: 18:00
Á fundinum verða til umræðu:
- Náttfatapartý/Sleepover
- Sjoppa
- Viðbrögð við óviðunandi hegðun
- Önnur mál
Líklegt er að svínaflensa sé farin að herja á nemendur þessa dagana. Handþvottur er eina þekkta ráðið til að hefta útbreiðslu veirunnar.
Einkenni:
Algengustu einkennin eru skyndilegur hiti, hósti, hálssærindi, slappleiki, beinverkir og höfuðverkur. Einkennum frá meltingarfærum (ógleði, uppköst og/eða niðurgangur) hefur verið lýst.
Handþvottur:
Hvernig:
Vandlega, með volgu vatni og sápu. Ekki er hægt að ætlast til að börn noti spritt, en ef það er notað þá skal það gert eftir vandlegan handþvott.
Hvenær:
Eftir salernisferðir
Fyrir matmálstíma
Eftir að hafa verið á fjölmennum stöðum og samkomum (t.d. þegar þau koma heim úr skóla og íþróttahúsi)
Meðferð:
Hvíld, og að drekka ríkulega af vökva. Hitalækkandi lyf, paracetamol (panodil, paratabs, pindex) eru ráðleg meðan hiti er hár, en aspirin (magnyl) á ekki að gefa börnum. Börn, og aðrir, með einkenni svínaflensu eiga að halda sig heima í amk 2 daga eftir að þau eru orðin hitalaus.
Foreldrum er bent á vefsíðuna www.influensa.is þar sem má fræðast nánar um svínaflensu.