Grunnskólinn á Stöðvarfirði

Púðar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Fimmtudagur, 04 mars 2010 15:15
Þau voru kát, börnin á Yngsta stigi, sem luku við að sauma sér púða í handmennt í morgun.



Aftari röð frá vinstri:  Sigurður Borgar Hrannarsson, Rakel Þorsteinsdóttir, Ösp Laufeyjardóttir og Dýrunn Elín Jósefsdóttir.
Fremri röð frá vinstri:  Máni Þorsteinsson, Axel Eide Ingþórsson, Brynjar Björn Sveinsson og Kolbrún Björk Jónasdóttir.
 
Heimilisfræði og handmennt Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Föstudagur, 26 febrúar 2010 12:41
Heimilisfræði er skapandi og skemmtileg námsgrein eins og sést á myndunum hér fyrir neðan en börnin á Yngsta stigi töfruðu fram fagurlega skreytt rúgbrauð, að sjálfsögðu innblásin af hafinu og nálægðinni við.  Miðstig aftur á móti þæfði ull en það verður forvitnilegt að sjá hvað út úr því kemur að lokum.  Afmælisbarnið og skólaliðin Eva María var ánægð með allt saman og brosti sínu breiðasta.


 
 
Íþróttadagur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Fimmtudagur, 11 febrúar 2010 14:57
Íþróttadagur grunnskólanna í Fjarðabyggð var að þessu sinni haldinn á Fáskrúðsfirði.  Allir skemmtu sér konunglega á meðan þeir þreyttu kappi í skák, stígvélasparki, skotbolta, ratleik, grettum eða tölvuleik, svo eitthvað sé nefnt.

En við tókum myndavélina með og hérna eru svipmyndir af krökkunum.  Okkar börn eru flest eru klædd í gula boli: 

 
 
 
Svipmyndir frá Þorrablóti 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Þriðjudagur, 09 febrúar 2010 15:13

 
Jólaundirbúningur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Miðvikudagur, 09 desember 2009 15:48
 
Öskudagur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Miðvikudagur, 17 febrúar 2010 12:20
Að venju var brugðið á leik í íþróttahúsinu á öskudaginn og sameinuðust Grunnskólinn á Stöðvarfirði og Leikskólinn Balaborg um það.  Margt var til skemmtunar gert og endað á því að slá köttinn úr tunnunni, eða pappakassanum í okkar tilfelli þar sem erfitt er orðið að fá trétunnur og plasttunnur helst til seigar.

En látum myndirnar tala:


 
LEGO kynning Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Miðvikudagur, 10 febrúar 2010 13:04
Nýverið heimsótti Jóhann Breiðfjörð skólann og sýndi nemendum hvernig nota má stýritækni í LEGO; tannhjól, mótora, gírun, lofttjakka og fleira.  Jóhann vann sem hönnuður hjá LEGO og hefur haldið fjölda námskeiða um þessa kubba sem meira að segja fólk sem nú er miðaldra lék sér með í æsku.  Hér eru myndir frá heimsókninni.
 
 
Skólabyrjun Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Miðvikudagur, 30 desember 2009 12:32
Skólahald hefst á nýju ári, þriðjudaginn 5. janúar kl. 9.40.
 
Foreldravikan Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Miðvikudagur, 02 desember 2009 13:20

Í síðustu viku þreyttum við frumraun okkar í að halda svokallaða foreldraviku.

Hún var með því sniði að allir foreldrar voru boðnir velkomnir að koma og sitja í tímum með börnum sínum.  Mætingin var mjög góð, allir foreldrar á Yngsta stigi mættu þessa viku og sumir oftar en einu sinni.   Nokkrir foreldrar á Miðstigi og  Elsta stigi litu líka inn. 


 


 

Við þökkum foreldrum fyrir samveruna og minnum á að skólinn er alltaf opinn fyrir foreldra að koma og vera með í tímum.  Hér eru nokkrar myndir frá Yngsta stigi við leik og störf með foreldrum sínum.

 
Fleiri greinar...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 4 af 10