Árshátíð Grunnskólans á Stöðvarfirði var í gær og tókst alveg hreint ljómandi vel. Krakkarnir léku og sungu eins og englar og allir skemmtu sér konunglega. Hér að neðan er myndasyrpa af hátíðinni en hreyfimyndir munu verða sýndar um leið og þær hafa verið unnar. Eins og sjá má, var Villta vestrið þema kvöldsins.
Lokahátið Stóru upplestrarkeppninnar fór fram á Fáskrúsðfirði í dag. Fyrir okkar hönd las Fjölnir Helgi Hrannarsson og stóð hann sig með mestu prýði þótt ekki hreppti hann verðlaunasæti. Nemendur úr Nesskóla náðu 2. og 3. sætið en sigurvegarinn var úr Grunnskóla Eskifjarðar.
Í bland við upplesturinn, léku nemendur Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar, þeirra á meðal Friðrik Júlíus Jósefsson sem er í fimmta bekk í Grunnskólanum á Stöðvarfirði. Að sjálfsögðu tókum við nokkrar myndir.
Yngsta stig grunnskólans fór í heimsókn á leikskólann Balaborg. Nemendur spiluðu á hljóðfæri fyrir leikskólabörnin og svo sungu allir saman nokkur lög. Í lokin var boðið upp á popp og ávexti og síðan var farið út að leika. Afar skemmtileg og vel lukkuð heimsókn. Takk fyrir okkur.
Árshátíð grunnskólans verður haldin fimmtudaginn 18. mars, 2010 kl. 19.00. Að vanda verður fjölbreytt dagskrá, þar sem allir nemendur taka þátt. Þetta árið verður nokkurs konar Kúrekaþema. Söngur, gleði og gaman.
Dagskrá:
1. Yngsta stig
Leiknir brandarar
Kúrekadans
2. Miðstig
Ævintýrið um kúrekann og Gvendolín Gloss (Heimalagaður einþáttungur í fjórum þáttum)
3. Elsta stig
Lukku Láki og Daltonbræður (frumsamið)
Tónlistaratriði
Kaffiveitingar verða í boði ferðahópsins.
Aðgangseyrir: 600 kr. fyrir fullorðna og 400 kr. fyrir nemendur.
Nokkrir nemendur á Miðstigi voru í heimilsfræði í dag, hvar þeim var kennt að leggja á borð. Það tókst svona líka ljómandi vel, eins og sjá má á þessari myndasyrpu: