Starry night
Við
| Samþætting námsgreina |
|
|
|
| Skrifað af Sólrún Friðriksdóttir | |||
| Þriðjudagur, 14 október 2008 15:33 | |||
|
Það er hægt að gera ýmislegt fleira við kartöflur en að borða þær. Þessa dagana eru nemendur í 1.-6. bekk að búa til listaverk, þar sem þau nota kartöflurnar sem þau settu niður sl. vor og tóku upp í haust. Skorin voru ýmis munstur í kartöflurnar og síðan þrykkt á efni með tauþrykkslit. Yngstu krakkarnir þrykkja á tilsniðnar svuntur og munu síðan sauma þær í handmennt og nota þær síðan í heimilisfræðinni. Krakkarnir í 4.-6. bekk eru að þrykkja á dúka. Að sjálfsögðu eru þau líka búin að matreiða kartöflur úr uppskerunni í heimilisfræði.
Hér má sjá fleiri myndir af 1.-3. bekk.
|


