Starry night
Við
| Frá skólaheilsugæslunni vegna svínaflensu |
|
|
|
| Skrifað af Administrator | |||
| Mánudagur, 12 október 2009 17:44 | |||
|
Líklegt er að svínaflensa sé farin að herja á nemendur þessa dagana. Handþvottur er eina þekkta ráðið til að hefta útbreiðslu veirunnar. Einkenni: Algengustu einkennin eru skyndilegur hiti, hósti, hálssærindi, slappleiki, beinverkir og höfuðverkur. Einkennum frá meltingarfærum (ógleði, uppköst og/eða niðurgangur) hefur verið lýst. Handþvottur: Hvernig: Vandlega, með volgu vatni og sápu. Ekki er hægt að ætlast til að börn noti spritt, en ef það er notað þá skal það gert eftir vandlegan handþvott. Hvenær: Eftir salernisferðir Fyrir matmálstíma Eftir að hafa verið á fjölmennum stöðum og samkomum (t.d. þegar þau koma heim úr skóla og íþróttahúsi) Meðferð: Hvíld, og að drekka ríkulega af vökva. Hitalækkandi lyf, paracetamol (panodil, paratabs, pindex) eru ráðleg meðan hiti er hár, en aspirin (magnyl) á ekki að gefa börnum. Börn, og aðrir, með einkenni svínaflensu eiga að halda sig heima í amk 2 daga eftir að þau eru orðin hitalaus. Foreldrum er bent á vefsíðuna www.influensa.is þar sem má fræðast nánar um svínaflensu.
|


