|
Skrifað af Sólrún Friðriksdóttir
|
|
Miðvikudagur, 30 september 2009 14:27 |
|
Í lífsleiknitíma þann 29. sept. fóru nemendur elsta stigs ásamt umsjónarkennara á myndlistarsýninguna „Steinn og Fjall“ sem nú stendur yfir í Gallerí Snærós. Þar sýnir Zdenek Paták teikningar og er myndefnið aðallega sótt í fjallshlíðarnar á Stöðvarfirði.

Krakkarnir voru búnir að semja spurningar fyrirfram til þess að taka viðtal við listamanninn og byrjuðu á því að spyrja hann um uppruna hans og listnám. Fengu að vita að hann er fæddur og uppalinn í borginni Prag í Tékklandi og þar er töluð tékkneska. Hann hefur haft áhuga á myndlist frá því hann var lítill og byrjaði sitt listnám í menntaskóla. Fór síðan í Listaháskólann í Prag og útskrifaðist þaðan sem grafískur hönnuður. Var alveg 11 ár í listnámi. Hann kom til Íslands 2004 og stundaði þá nám sem gestanemi við Listaháskólann í Reykjavík. Þau spurðu hann um tæknileg atriði varðandi myndirnar og fengu að vita að hann notaði aðallega blýanta og kol við gerð þeirra og smá vatn. Einnig fengu þau að vita að það tók hann einn og hálfan mánuð að teikna stærstu myndina. Hann sagði þeim síðan nánar frá myndunum og hvers vegna hann teiknaði þær. Hann upplifir náttúruna hér svo sterkt og fann mikla löngun hjá sér til þess að teikna þessi stórbrotnu form í landslaginu sem eru jafnframt svo abstrakt.
Þeim lék forvitni á að vita hvernig honum líkaði að búa á Íslandi en Zdenek hefur verið búsettur á Stöðvarfirði sl. 2 ár. Hann lét vel af því og finnst að hér séu allskyns möguleikar, mikið frelsi og gott að vera í svona nánum tengslum við náttúruna.
Fleiri myndir úr heimsókninni er að finna hérna.
|