Starry night
Við
| Námskrá Elsta stigs |
|
|
|
| Skrifað af Administrator | |||
| Miðvikudagur, 21 október 2009 13:23 | |||
|
Íslenska Kennari Sólrún Friðriksdóttir Í 8.-10. bekk er leitast við að vinna með alla þætti móðurmálsins þannig að hver þáttur styðji annan og þeir myndi saman eina heild. Mismunandi þættir móðurmálsins eru kenndir í tengslum hver við annan eftir því sem aðstæður og námsefni gefa tækifæri til. Á þessu stigi eru gerðar auknar kröfur um skilning nemenda á grunnhugtökum málfræði og bókmennta, án þess þó að hugtakanámið sé markmið í sjálfu sér. Mikilvægt er að nemendur fái að njóta tungumálsins í öllum sínum myndum, hlýði á upplestur og söng, sjái leiksýningar og kvikmyndir og taki þátt í að flytja menningartengt efni. Markvisst er unnið að ritun og stafsetningu og tölvutæknin nýtt til þjálfunar og bæði til upplýsingaöflunar og miðlunar. Lögð er áhersla á innihaldsrík viðfangsefni sem tengjast hvers konar textum, málnotkun fjölmiðla og málefnum líðandi stundar. Við lok 10. bekkjar: Lestur
Talað mál og hlustun
Hlustun og áhorf:
Ritun:
Bókmenntir:
Málfræði:
Sjá aðalnámskrá grunnskóla fyrir íslensku Kennsluaðferðir:
Námsefni vetrarins Kennslubók í málvísi og ljóðlist, Finnur 1, Fallorð, Sagnorð, Smáorð, Smásagnasmáræði,Gísli Súrsson, Ljóðspor / Ljóðspeglar, Skólavefurinn og Nams.is. Námsmat: Áhugi og virkni í tímum, skil á heimaverkefnum, skyndipróf, miðsvetrar-og vorpróf. Sjálfsmat. Stærðfræði Jónas E. Ólafsson Markmið Sjá aðalnámskrá grunnskóla fyrir stærðfræði Þegar nálgast lok skyldunáms verður krafan um góða þekkingu og skilning á helstu þáttum stærðfræðinnar áþreifanlegri en á yngri stigum. Þá er ætlast til þess að nemendur þekki vel til helstu hugtaka og aðferða, reiknings, algebru, rúmfræði, tölfræði og líkindafræði. Einnig ættu þeir að hafa öðlast sjálfstraust til að leita lausna ýmissa viðfangsefna og færni til að tjá sig munnlega og skriflega um niðurstöður. Drjúgur hópur nemenda ætti að hafa náð valdi á undirstöðuatriðum algebru. Mikilvægt er að nemendur nái góðum tökum á að leysa jöfnur og átta sig á röksamhengi í því ferli. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi gott vald á metrakerfinu og mælingum, geti reiknað ummál og flatarmál algengra flatarmynda og rúmmál og yfirborð einfaldra þrívíðra hluta. Tengsl stærðfræðinnar við daglegt líf er mikilvægt og því þarf að tengja stærðfræðinámið verkefnum sem nemendur þekkja til. Markmiðið með þessu er að nemandinn öðlist sjálfstraust til að beita stærðfræðinni af öryggi í daglegu lífi og geri sér grein fyrir að góð stærðfræðikunnátta er mikilvægur þáttur í almennri lífsleikni. Námsefni Almenn stærðfræði I, II og III. Átta-tíu bækurnar (að hluta), önnur verkefni frá kennara, rasmus.is og fleiri vefverkefni. Námsmat Fylgst er reglulega með kunnáttu nemenda með könnunarverkefnum og heimaverkefnum. Miðsvetrarpróf og vorpróf Enska Kennari Björgvin Valur Guðmundsson Á upplýsingaöld er kunnátta í ensku orðin nauðsynleg í daglegu lífi. Við þurfum að geta átt samskipti við fólk erlendis, nýtt okkur upplýsingar á tölvutæku formi og notað tungumálið til gagns og ánægju. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á talað mál alveg frá 5. bekk. Námsefni Spotlight, Network 2, Network 3 Write Wright og efni af netinu. Talað mál:
Hlustun:
Lestur:
Ritun:
Sjá aðalnámskrá grunnskóla fyrir erlend tungumál Danska Kennari: Sólrún Friðriksdóttir Danska er annað erlenda málið sem nemendur læra í grunnskóla. Með námi í dönsku er stuðlað að því að viðhalda og efla tengsl við Norðurlönd. Danska er kennd vegna samskipta og menningartengsla norrænna þjóða og einnig sækir stór hópur Íslendinga nám og störf á Norðurlöndum. Danska og íslenska eru náskyld tungumál og auðveldar það Íslendingum dönskunámið. Segja má að dönskukunnátta sé lykill að Norðurlöndum og nýtist því einnig til að eiga samskipti við þá sem tala norsku og sænsku. Námsmarkmið: Nemendur þurfa að fá tækifæri til að hlusta á dönsku eins oft og kostur er. Nauðsynlegt er að nemendur fái æfingu í að tala málið með notkun talæfinga. Megintilgangur lestrar er að auka við orðaforða og áhersla lögð á fjölbreytta lestrartexta. Ritun er ætlað að festa þann orðaforða sem tengist viðfangsefnum. Við lok 10. bekkjar: Hlustun:
Lestur:
Talað mál:
Ritun:
Aðferðir til að ná þessum markmiðum eru lestur frjálslestrarbóka, málfræðivinna, samtalsæfingar, áhorf myndbanda og ýmiskonar hlustun, samræður um daglegt líf í Danmörku, tölvunotkun, bæði kennsluforrit og bréfasendingar. Áfangamarkmið
Sjá aðalnámskrá grunnskóla fyrir erlend tungumál Námsefni: Tænk og Ekko, lesbækur, vinnubækur og hlustunarefni. Ýmsir námsvefir s.s. Skólavefurinn, nams.is, Danske diamanter og fl. Ennfremur horft á danskar kvikmyndir og unnin verkefni í tengslum við þær. Námsmat: Áhugi og virkni í tímum, skil á heimaverkefnum, skyndipróf, miðsvetrar-og vorpróf. Sjálfsmat. Saga Kennari: Jónas E. Ólafsson Markmið: m.a. að nemandinn:
Sjá aðalnámskrá grunnskóla fyrir samfélagsgreinar Námsefni: Úr sveit í borg, Samfélagsfræðivefurinn, Skólavefurinn o.fl. Námsmat: Vinnsla verkefna, frammistaða í tímum og próf. Náttúrufræði Kennari: Þóranna Lilja Snorradóttir Markmið: Sjá aðalnámskrá fyrir náttúrufræði á síðu Menntamálaráðuneytisins. Á unglingastigi eiga nemendur að öðlast færni og sjálfsöryggi við að leysa fjölbreytt verkefni með eða án ítarlegra leiðbeininga og geta fjallað um sameiginlega þætti í ólíkum námsgreinum, s.s. landafræði, sögu, félagsfræði og náttúrufræði. Mikilvægt er að nemendur öðlist vilja til að leita eftir og deila upplýsingum og skýringum með öðrum. Þannig átta þeir sig frekar á að útskýringar eru aldrei endanlegar og ekki er hægt að sanna þær svo að óyggjandi sé. Þeir þurfa að gera sér grein fyrir hlutverki líkinga í vísindalegum skýringum, geta útskýrt með dæmum hvernig þekking á náttúrunni hefur þróast og geta fjallað um gagnkvæm áhrif tækni og vísindalegra framfara, t.d. með tilkomu smásjárinnar og sjónaukans, eða uppgötvun röntgengeisla og hagnýtingu þeirra. Námsefni: Unnið verður með bókina Lífheimurinn fyrir áramót og svo verður farið í bækurnar Erfðir og þróun og Efnafræði eftir áramót. Námsmat: Verkefni, upprifjanir og kaflapróf ásamt sjálfsmati. Námstækni og lífsleikni 8.-10. bekkur Markmið: Að kynna fyrir nemendum árangursríkar aðferðir í námi. Stuðla að því að nemendur meti og endurskoði námsvenjur sínar og aðrar lífsvenjur sem geta haft áhrif á nám. Einnig að aðstoða nemendur við að setja sér raunhæf markmið í námi sínu og stuðla að auknu sjálfstrausti nemenda. Fjallað verður um eftirfarandi þætti:
Einnig verður farið í jafnréttisfræðslu því mikilvægt er að nemendur séu færir um að hafa mannréttindi og jafnrétti að leiðarljósi í samskiptum. Nemendur verða þjálfaðir í að færa rök fyrir máli sínu í því skyni að geta tjáð og rökrætt hugsanir sínar, skoðanir, tilfinningar og væntinar. Linkur á lífsleikni Námsefni: Námstækni fyrir efstu bekki grunnskóla Náðu tökum á náminu! Jafnréttishandbókin og efni af netinu tengt jafnrétti. Klárari en þú heldur og ýmislegt ítarefni frá kennara tengt sjálfstrausti og uppbyggingu. Námsmat: Verkefnavinna (einkunnir og skil) gilda 50%, þátttaka og virkni í tímum 50%. Bekkjarfundir Kennari Sólrún Friðriksdóttir Bekkjarfundir eru stundaskrá, 60 mín. einu sinni í viku. Meginmarkmið bekkjarfunda er að skapa öruggara andrúmsloft meðal nemenda þar sem traust og samvinna ríkir meðal þeirra sem taka þátt í fundinum. Á bekkjarfundum gilda ákveðnar reglur sem nauðsynlegt er að fylgja á hverjum fundi og eru þær helstar:
Í lok hvers fundar meta nemendur sjálfir hvernig til hefur tekist með fundinn. Listasmiðja (Val) Kennarar: Þóranna Lilja Snorradóttir og Sólrún Friðriksdóttir Markmið: Sjá aðalnámskrá grunnskóla fyrir hönnum og smíði á vef menntamálaráðuneytis Sjá nánar aðalnámskrá grunnskóla fyrir listgreinar Í vetur verður sú nýbreytni að Hönnun og smíði og Myndmennt verða kennd í vali sem listasmiðja. Þetta eru þrjú skipti hjá hvorum kennara, 5 vikur hver lota. Í hönnun og smíði fær nemandinn þjálfun í að móta hugmynd í efni með þeirri verktækni og verkþekkingu sem greinin býr yfir. Þetta verklag hvílir á sígildri kunnáttu sem mikilvægt er að hver ný kynslóð nái að tileinka sér. Smíði felur í sér nýtingu efnisheimsins sem hefur aftur mótandi áhrif á umhverfi. Með smíðinni er verið að laga umhverfið að þörfum okkar. Í vetur verða unnin þrjú verkefni í Hönnun og smíði. Góðmálmasmíði
Stóll
Listaverk
Námsmat. Nemendur metnir eftir hvert verkefni Myndmennt Sjónræn upplifun er stór þáttur skynjunar og skilnings mannsins á heiminum enda bendir flest til þess að hann hafi allt frá upphafi vega myndgert líf sitt og umhverfi í margvíslegum tilgangi. Myndir hafa sitt eigið tungumál, myndmál, og maðurinn hefur alla tíð notað myndir sem boðtæki þeirra hluta sem ekki er hægt að lýsa á annan hátt. Myndmál miðlar viðhorfum, skoðunum og hugmyndum samfélagsins ekki síður en tungumál. Teikning:
Mótun – skúlptúr
Ljósmyndun og málun
Sjá nánar aðalnámskrá grunnskóla fyrir listgreinar Námsmat: Öll unnin verkefni metin jafnóðum og metnir þættir s.s. frumleiki, vinnubrögð, framfarir, frumkvæði og viðhorf til námsins. Einnig sjálfsmat. Nemendur fá bæði umsagnir og einkunnir. Heimilisfræði Kennari Jóhanna Margrét Agnarsdóttir Markmið Lögð er áhersla á að veita þekkingu og leikni í heimilisstörfum og auðvelda skipulagningu, samvinnu og hagsýni. Meðal viðfangsefna má nefna næringarfræði, matvælafræði, neytendafræði, hreinlætisfræði, vinnuskipulag, matreiðslu og bakstur. Námsefni heimilisfræði ll (Námsgagnastofnun), verkefnablöð og fjölritað efni frá kennara. Námsmat Símat í kennslustundum. Íþróttir
Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir Markmið: Sjá aðalnámskrá fyrir íþróttir, líkams- og heilsurækt Nemendur á grunnskólaaldri eru á aldursskeiði sem einkennist af miklum vexti og örum þroska. Framvinda eðlilegs þroska, hvort heldur um er að ræða skyn- og hreyfiþroska, líkams- og fagurþroska eða félags-, tilfinninga og siðgæðisþroska, er að miklu leyti háð hæfilegri áreynslu og samspili markvissra æfinga og leikja. Með kerfisbundinni þjálfun eða útfærslu leikja er hægt að auka starfsemi líkamans og sinna mismunandi þroskaþáttum. Á því aldursskeiði, sem grunnskólinn nær yfir, er t.d. unnt, betur en síðar á ævinni, að auka hæfni hjarta og blóðrásar með markvissri þjálfun. Hið sama á við um atriði sem ná til skyn- og hreyfiþroska. Því er það eitt meginmarkmið skólaíþrótta að örva skyn- og hreyfiþroska hvers nemanda, þrek hans og afkastagetu og stuðla þannig að heilbrigði einstaklingsins. Námsmat: Virkni í tímum, píptest og mánaðarleg þrekpróf. Val: Myndmennt Kennari:Sólrún Friðriksdóttir Sjónræn upplifun er stór þáttur skynjunar og skilnings mannsins á heiminum enda bendir flest til þess að hann hafi allt frá upphafi vega myndgert líf sitt og umhverfi í margvíslegum tilgangi. Myndir hafa sitt eigið tungumál, myndmál, og maðurinn hefur alla tíð notað myndir sem boðtæki þeirra hluta sem ekki er hægt að lýsa á annan hátt. Myndmál miðlar viðhorfum, skoðunum og hugmyndum samfélagsins ekki síður en tungumál. Á þessu stigi er áhersla lögð á sjálfstæða vinnu nemenda á grundvelli fyrra náms. Við lok 10. bekkjar eiga nemendur að geta fylgt hugmynd til endanlegs verks. Þeir eiga að geta nýtt sér í eigin sköpun grunnþætti myndlistar s.s. útfærslu línunnar, lita-og formfræði, myndbyggingu, rými og áferð. Þeir eiga að kunna góð skil á ýmsum tegundum efna og áhalda til myndgerðar. Þeir eiga að geta nýtt sér nútímamiðla s.s. Netið, til að skoða listasöfn og afla sér upplýsinga um myndlist. Eiga að þekkja til helstu stefna og þekkja til fjölbreytni nútímalistar. Sjá nánar aðalnámskrá grunnskóla fyrir listgreinar Námsmat: Öll unnin verkefni metin jafnóðum og metnir þættir s.s. frumleiki, vinnubrögð, framfarir, frumkvæði og viðhorf til námsins. Einnig sjálfsmat. Nemendur fá bæði umsagnir og einkunnir. Val: Miðlun Björgvin Valur Guðmundsson Farið verður í gerð stuttmynda, ljósmyndun og rafræna miðlun. Námsefni er útbúið af kennara. Valgreinar
Bókfærsla 103 (FAS) Fjallað er um grundvallaratriði bókhalds, dagbókarfærslur, opnun og lokun höfuðbókar og tengsl þessara bóka. Kenndur reikningsjöfnuður með einföldum athugasemdum. Helstu undirbækur kynntar. Kennt að merkja fylgiskjöl og færa dagbók eftir þeim. Nemendum gerð grein fyrir hlutverki bókarans og tilgangi bókhalds og sagt frá helstu bókhaldslögum til skilningsauka. Kynntar allar helstu bókhaldsbækur og mismunandi aðferðir við færslu bókhalds í fyrirtækjum. Mikil áhersla lögð á vönduð vinnubrögð nemenda og góðan frágang. Tónlist Grunnskólinn á Stöðvarfirði og Tónlistarskóli Fáskrúðs- og Stöðvarfjarðar hafa með sér samstarf um að bjóða nemendum í unglingastigi upp á tónlistarval. Námið sjálft er alfarið á vegum Tónlistarskólans og er kennt samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla. Mætingarskylda er í námið og þurfa nemendur að greiða skólagjöld samkvæmt gjaldskrá Fjarðabyggðar. Heimilisfræði Markmið
Nám og kennsla Notuð er bókin Matur og menning ásamt ýmsum uppskriftum sem fást bæði í matreiðslubókum og eins á netinu. Í heimilisfræðinni er fengist við bæði bóklega og verklega kennslu. Það er reynt eins og kostur er að samþætta verklega og bóklega þætti námsins. Námsmat Verkleg þjálfun er stór hluti heimilisfræðinnar og er því símat nauðsynlegt. Það er framkvæmt með því að nota matsblað sem tekur á því hvernig nemandi vinnur í tímum, hvernig hann kemur fram við þá sem hann vinnur með, hvernig hann gengur um og hvort hann sýni tillitssemi og kurteisi í tímum. Stuttmyndagerð Skrifað verður handrit og búin til lýsing á myndinni, „storyboard,“ og hugað að tökustöðum, sviðsmyndum, birtu og lýsingu, aðferðum við tökur og fleira. Myndin síðan tekin upp og hún klippt og hljóðsett. LEGO Tæknilegosett skólans verður notað og nemendur hanna þrautabraut og lausnir fyrir hana. Farið verður í forritun og hönnun og smíði vélmenna og annarra hreyfanlegra hluta úr Lego. Ef unnt reynist, verður hópurinn skráður til þátttöku í First LEGO League keppninni. Textíll
Nám 2 skylduverkefni og 2 valverkefni unnin í samráði við textílkennara. 1. Skylduverkefni: Nemendur læra að taka mál af sér og búa til grunnsnið af pilsi og vinna nánar með það á önninni. Nemendur læra meðal annars að breyta grunnsniði og gera ýmsar útfærslur á sniðinu. Nemendur læra að setja í rennilás og að falda flíkina. 2. Valverkefni í samráði við textílkennara. Nemendur þurfa að gera grein fyrir í verkefnabók hvaða áhöld þeir notuðu, hvaða efni og hvaða aðferð var beitt. 3. Skylduverkefni: Fatasaumur 4. Valverkefni í samráði við textílkennara. Nemendur þurfa að gera grein fyrir í verkefnabók hvaða áhöld þeir notuðu, hvaða efni og hvaða aðferð var beitt. Heilsurækt Útivist. Fyrstu tveir mánuðirnir verða helgaðir útivist. Fyrirhugaðar eru tvær fjallgöngur, þar sem önnur fjallgangan verður mjög krefjandi, gist verður í tjöldum og þurfa nemendur að hafa tilheyrandi búnað meðferðis. Íþróttafræði 102 Áfangamarkmið Nemandi:
|


