Starry night

  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow

Við



Námskrá yngsta stigs Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Þriðjudagur, 04 nóvember 2008 14:45

Lestur 2. bekkur

Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir.

Markmið:

  • Að nemandi örvist til lestrar með fjölbreyttum verkefnum við hæfi, t.d. með því að skoða myndabækur, hlusta á fjölbreytilegar sögur og með ýmsum stafa- og orðaleikjum.
  • Að nemendur skilji inntakið í auðveldum texta og tileinki sér skýran framburð.
  • Að stuðla að því að nemendur geti sjálfir farið að lesa bækur sér til ánægju.
  • Að nemendur hafi greiðan aðgang og nýti sér bækur og annað lesefni, bæði í kennslustofu og á skólasafni.
  • Að nemendur auki orðaforða sinn, málskilning og lesskilning með fjölbreyttum verkefnum.
  • Að nemendur geti lesið upphátt, á viðunandi hraða, skýrt og áheyrilega.

 

Námsefni:
Nemendur munu lesa ýmsar lestrarbækur sem henta lestrargetu hvers og eins. Nemendur verða einnig hvattir til að fá sér bækur á bókasafninu og lesa sjálfir. Valdar eru bækur sem henta hverjum og einum nemanda.

Námsmat:
Símat, sem byggist m.a. á lesskilningi, leshraða og framburði. Lesskimunarpróf Læsi 1. og 2. lagt fyrir nemendur.

Mikilvægt er að börnin lesi heima á hverjum degi og að foreldrar /forráðamenn fylgist með heimalestrinum og kvitti fyrir lesturinn.

Skrift 2. bekkur.

Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir.

Markmið

  • Að nemendi skrifi stafina rétt á línuna, hafi hæfilegt bil á milli stafa og orða. Að nemendi nái að tileinka sér skýra og læsilega skrift.
  • Að nemandi þjálfist í að stafsetja rétt með því að vinna margvísleg ritunarverkefni.
  • Að nemandi geri sér grein fyrir mikilvægi þess að vanda sig í ritun.
  • Að nemandi geti sjálfur skráð frásagnir um atburði úr eigin lífi.

 

Námsefni:
Nemendur fá Skrift 2 Námsgagnastofnun og Skrift 2 eftir Hörð Rafnsson, auk skriftarstrimla og gefinnar forskriftar frá kennara. Nemendur fá einnig ýmiss konar skriftarhefti. Nemendur fá aukaverkefni til uppfyllingar og tilbreytingar í náminu.

Námsmat:
Símat. Fylgst er reglulega með kunnáttu nemenda með könnunarverkefnum.

Stærðfræði 2. bekkur

Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir.

Markmið

  • Að nemendur nái valdi á þeim reikningsaðferðum sem farið er yfir í kennslubókunum og geti leyst einföld dæmi með notkun þeirra.
  • Að nemendur skilji og geti notað tölutáknin 0 - 100 í einföldum reiknisaðgerðum.
  • Að nemandi þekki sléttar tölur og oddatölur.
  • Að nemandi geti sett upp margföldunartöfluna upp í 5x.
  • Að nemandi geti notað fjölbreyttar aðferðir við samlagningu og frádrátt.
  • Að nemendur læri að nota hin ýmsu mælitæki s.s. reglustiku, málmband og vog.
  • Að nemendur læri að vinna með klukkuna og tímatalið.
  • Að nemendur læri að skrá og vinna með töflur og súlurit.

 

Námsefni:
Eining 3 og 4, Stærðfræði 2A, Tíu tuttugu og Viltu reyna. Ýmiss ljósrituð aukaverkefni verða notuð til að tryggja að nemendur nái örugglega tökum á reikningsaðgerðunum sem þau eru að fást við í hvert skipti.

Námsmat:
Símat, einnig verða frammistaða og virkni í tímum metin.

Íslenska 2. bekkur

Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir.

Markmið:

  • Að nemandi geri sér grein fyrir að orð eru til í mismunandi beygingarmyndum.
  • Að nemandi átti sig á að orð geta verið samsett úr tveimur eða fleirum orðum.
  • Að nemandi þjálfist í að þekkja og greina samheiti, andheiti, sérnöfn og samnöfn.

 

Áhersla verður lögð á frumþætti móðurmálsins, þ.e. mælt mál, lestur, hlustun og ritun. Grunnur verður lagður að málfræðináminu og leitast við að auka orðaforða, efla málskilning og örva málnotkun nemenda sem framast er unnt.

Námsefni:
Pínulitla Ritrún, Litla Ritrún, Ás og Tvistur ásamt aukaverkefnum.

Námsmat:
Símat, einnig verða virkni og vinna nemenda í tímum metin.

Lestur

Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir.

Markmið

  • Að nemandi örvist til lestrar með fjölbreyttum verkefnum við hæfi, t.d. með því að lesa myndabækur, hlusta á sögur og með ýmsum stafa- og orðaleikjum.
  • Að nemendur skilji inntakið í auðveldum texta og tileinki sér skýran framburð.
  • Að stuðla að því að nemendur geti lesið bækur sér til ánægju.
  • Að nemendur hafi greiðan aðgang og nýti sér bækur og annað lesefni, bæði í kennslustofu og á skólasafni.
  • Að nemendur auki orðaforða sinn, málskilning og lesskilning með fjölbreyttum verkefnum.
  • Að nemendur geti lesið upphátt, á viðunandi hraða, skýrt og áheyrilega.

 

Námsefni:
Nemendur munu lesa bækur sem henta lestrargetu hvers og eins. Nemendur verða einnig hvattir til að fá sér bækur á bókasafninu og lesa sjálfir. Valdar eru í sameiningu bækur sem henta hverjum og einum. Mikilvægt er að börnin lesi heima á hverjum degi og að foreldrar/forráðamenn fylgist með heimalestrinum og kvitti fyrir lesturinn.

Námsmat:
Símat, sem byggjast á lesskilningi, leshraða og framburði.

Skrift

Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir.

Markmið

  • Að nemendi skrifi stafina rétt á línuna, hafi hæfilegt bil á milli stafa og orða. Að nemendi nái að tileinka sér skýra og læsilega skrift.
  • Að nemandi þjálfist í að stafsetja rétt með því að vinna margvísleg ritunarverkefni.
  • Að nemandi geri sér grein fyrir mikilvægi þess að vanda sig í ritun.
  • Að nemandi geti skráð frásagnir um atburði úr eigin lífi.

 

Námsmat:
Símat. Auk þess verða gefnar einkunnir fyrir ástundun í tímum og heimavinnu.

Íslenska

Kennari Jóna Petra Magnúsdóttir

Markmið

  • Að nemandi geri sér grein fyrir að orð eru til í mismunandi beygingarmyndum.
  • Að nemandi átti sig á að orð geta verið samsett úr tveimur eða fleirum orðum.
  • Að nemandi þjálfist í að þekkja og greina samheiti, andheiti, sérnöfn og samnöfn.

 

Nemendur nái góðu valdi á móðurmálinum, þ.e. töluðu máli, hlustun, lestri og ritun. Ennfremur að þeir geti tjáð skoðanir sínar og tilfinningar í töluðu og rituðu máli.

Námsefni:
Ritrún, Tvistur og Þristur. Ýmsar lestrar- og skriftarbækur. Verkefnabækur o.fl.

Námsmat:
Símat. Áhugi, virkni og vinna nemenda metin.

Stærðfræði 3. bekkur

Kennari Jóna Petra Magnúsdóttir.

Markmið

  • Að nemendur nái valdi á þeim reikningsaðferðum sem farið er yfir í kennslubókunum og geti leyst einföld dæmi með notkun þeirra.
  • Að nemandi þekki sléttar tölur og oddatölur.
  • Að nemandi geti sett upp margföldunartöfluna upp í 10 x 10 og nýtt sér hana.
  • Að nemandi geti notað fjölbreyttar aðferðir við samlagningu og frádrátt.
  • Að nemandi noti vasareikna við útreikninga, hvort sem er í bók eða leik tengdum daglegu lífi.
  • Að nemandi skoði og búi til mynstur, kunni að nota talnalínu, súlurit og hnitakerfið
  • Að nemandi þjálfist í að lesa á tölvuklukku og klukku með skífu og beri saman.

 

Námsefni:
Eining 5 og 6,Tíu tuttugu, Stærðfræði 3A, Viltu reyna og stærðfræðibækur Helgu Sigurjónsdóttur. Ýmiss ljósrituð aukaverkefni verða notuð til að tryggja að nemendur nái örugglega tökum á reikningsaðgerðunum sem þau eru að fást við í hvert skipti.

Námsmat:
Símat yfri veturinn.

Náttúrufræði 2. og 3. bekkur

Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir

Markmið

  • Að vekja athygli nemenda á náttúrunni og að bera virðingu fyrir henni.
  • Að skoða og ræða um afleiðingar árstíðabreytinga í íslenskri náttúru og nánasta umhverfi.
  • Að nemendur þekki helstu tré og hvað er sameiginlegt með trjám.
  • Að nemandi átti sig á því hvernig fólk breytir umhverfi sínu t.d. með landrækt, vegalagningu og húsbyggingum.
  • Að nemendur þekki þjóðarblómið holtasóley.

 

Námsefni:
Náttúran allan ársins hring, Tré, Þjóðarblómið holtasóley og Úti um mela og móa.

Námsmat:
Símat yfir veturinn. Vinna nemenda í tímum og vinnubók metin.

Samfélagsfræði 2. og 3. bekkur

Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir

Markmið

  • Auka þekkingu barnanna á íslensku húsdýrunum og hvaða hlutverki þau gegna í samfélaginu.
  • Að nemandi þekki hvernig dýr annast afkvæmi sín samanborið við manninn.
  • Að nemendi þekki íslensk spendýr á landi.
  • Að nemandi þekki muninn á farfuglum og staðfuglum og þekki algengustu far- og staðfugla landsins.
  • Læri að lesa staðsetningu af korti með grófum rúðum.
  • Fáí þjálfun í að lesa úr einföldum töflum.
  • Þekki helstu veðurtákn sem notuð eru við veðurlýsingar.
  • Efla sjálfstæða hugsun.
  • Auka þekkingu og hvetja til fróðleiksleitar.

Námsefni:
Í sveitinni með Æsu og Gauta og Kostuleg kort og gröf

Námsmat:
Símat yfir veturinn. Vinna nemenda í tímum og vinnubók metin.

Kristinfræði 2. og 3. bekkur

Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir

Markmið:

  • Að nemendur efli trúarlegan, siðferðilegan og félagslegan þroska sinn.
  • Að nemendur skilji hvað felst í orðunum kærleikur, sáttfýsi, umhyggja, og virðing.
  • Að sýna nemendum að börn og fullorðnir geta umgengist, verið vinir og samt haft ólíka siði, venjur og trú.

 

Námsefni:
Trúarbrögðin okkar.

Námsmat:
Símat yfir veturinn, frammistaða og virkni í tímum metin.

Tónmennt 2. og 3. bekkur

Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir.

Markmið:
Meginmarkmið eru m.a. að vekja og efla áhuga á tónlist með því að veita nemendum tækifæri til að iðka hana, njóta hennar og taka þátt í skapandi starfi. Að nemendur læri innlend og erlend sönglög svo og hreyfisöngva. Að nemendur vinni með takt og geri mun á hröðum og hægum takti og læri einnig að gera greinamun á háum, lágum, sterkum og veikum tónum. Þroska og efla tónskyn, sköpunargáfu og aðra tónlistarhæfileika nemenda og auka næmi þeirra fyrir tónlist.

Námsefni:
Það var lagið, Syngjum saman, Nýtt söngvasafn og Barnadansar. Nemendur fá að smíða sín eigin hljóðfæri s.s. Kazoo (gæsaflautu). Einnig verður hlustað á tónlist og horft á myndbönd.

Námsmat:
Umsögn gefin í lok skólaárs.

Enska 2. og 3. bekkur

Kennari: Jóna Petra Magnúdsóttir

Markmið

  • Að nemendur hafi jákvætt viðhorf til tungumálsins.
  • Að nemendur skilji einfalt talað mál og geti tjáð sig á einfaldan hátt.
  • Að nemendur læri enska söngva.
  • Að nemendur þjálfist í enskum framburði.

 

Námsefni:
Hickory, Dickory, Dock og geisladiskurinn Right on notaður, ýmiss verkefni af vef.

Námsmat:
Umsögn í lok anna um frammistöðu og virkni í tímum.

Lífsleikni

Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir

Markmið:
Að nemendur rækti með sér samkennd og virðingu fyrir skoðunum og lífsgildum annarra. Öðlist færni í tjáskiptum og styrkist þannig í að tjá og fylgja eftir skoðunum sínum.

Námsefni:
Gaman saman, Spor 1 - 4, Samskipti

Námsmat:
Umsögn í lok anna um frammistöðu og virkni í tímum.

Hönnun og smíði

Kennari: Þóranna Lilja Snorradóttir

Markmið:

Að nemandi

  • öðlist færni í að meðhöndla mismunandi efnivið s.s. tré og plast.
  • læri að sýna þeim hlutum sem hann vinnur með virðingu.
  • læri að umgangast tæki og tól.
  • læri að bera virðingu fyrir vinnu annarra.
  • hanni og smíði nytjahlut.
  • öðlist færni í útsögun og yfirborðsmeðferð.

 

Í hönnun og smíði fær nemandinn þjálfun í að móta hugmynd í efni með þeirri verktækni og verkþekkingu sem greinin býr yfir. Þetta verklag hvílir á sígildri kunnáttu sem mikilvægt er að hver ný kynslóð nái að tileinka sér. Smíði felur í sér nýtingu efnisheimsins sem hefur aftur mótandi áhrif á umhverfi. Með smíðinni er verið að laga umhverfið að þörfum okkar.

Námsmat:
Verkefni og símat.

Íþróttir

2. og 3. bekkur

Kennari: Jóna Petra Magnúsdóttir

Markmið:

  • Að nota leiki og ýmsar æfingar til að skapa áhuga á hreyfingu, sem varir ævilangt.
  • Að nemendur efli líkamlegan þroska sinn, heilbrigði og þrek.
  • Áhersla lögð á fín- og grófhreyfingar.
  • Efli hæfileika til tjáningar og sköpunar.
  • Fái aukið sjálfstraust, viljastyrk og áræði.
  • Að nemendur taki þátt í hópleikjum, læri einfaldar reglur og fari eftir þeim.

 

Námsmat:
Símat. Kennari metur virkni nemenda í tímum og hversu vel þeir fara eftir fyrirmælum.

Nota skal sérstakan fatnað í íþróttatímum þ.e. stuttbuxur, stuttermabol eða íþróttagalla og einnig þurfa nemendur að eiga tvenn pör af íþróttaskóm þ.e. til að vera í inni og úti.

Upplýsingatækni

Kennari: Guðrún Ármannsdóttir

Námsefni: Ýmislegt

Markmið:

Að nemendi

  • þjálfist í að umgangast tölvur
  • myndi jákvætt viðhorf til tölva
  • þekki helstu hluta tölvunnar
  • geti farið á netið og leitað sér einföldustu upplýsinga
  • kunni eitthvað til fingrasetningar

 

Námsmat:
Vinna nemenda metin í lok annar.

Myndmennt 1., 2. og 3. bekkur

Kennari: Sólrún Friðriksdóttir

Markmið:

Að þroska og þjálfa huga og hendur barnanna. Vekja þau til vitundar um getu sína og hæfni, sem verður þeim síðan eðlileg hvatning til frumkvæðis og sjálfstæðrar sköpunar í öllu námi.

Námsefni og inntak:

  • Áhersla lögð á frjálsa barnateiknun og ýtt undir hugmyndflug nemenda.
  • Nemendur þjálfist í að tjá og lýsa eigin reynslu og skoðunum á myndrænan hátt.
  • Teiknað og málað með margs konar litum.
  • Einföld lita-og formfræði er numin sem eðlilegur þáttur frjálsrar myndsköpunar.
  • Litahringurinn
  • Mótað í leir og önnur efni.
  • Svolítil listasaga fléttuð inn í námið
  • Áhersla lögð á að námið tengist umhverfi barnanna.

     

    Námsmat:
    Unnin verkefni eru metin jafnóðum og vegur þar þungt áhugi, vandvirkni, vinnubrögð, umgengni og viðhorf til námsins. Allir þessir þættir eru metnir til lokaeinkunnar.

    Textílmennt 2. og 3. bekkur

    Kennari: Jóhanna Margrét Agnarsdóttir

    Markmið:

    • Að nemendur þjálfist í einföldum vinnubrögðum í handmennt
    • Að nemendur efli sjálfstæði sitt og frumkvæði í vinnubrögðum
    • Að nemendur temji sér vandvirkni og góða umgengni
    • Að nemandinn vinni útsaumsverkefni með mismunandi útsaumssporum.
    • Að nemandinn læri einföldustu atriði við notkun saumavélar.

     

    Námsmat:
    Tekið verður tillit til framkomu, frumkvæðis, vandvirkni og vinnusemi