Starry night
Við
| Fundargerðir skólaráðs |
|
|
|
| Skrifað af Administrator | |||
| Mánudagur, 06 júlí 2009 16:26 | |||
|
Fundur í skólaráði 16. febrúar 2011 klukkan 15:30 Fundarmenn: Guðmundur Arnar Hreinsson, Rósmarý Dröfn Sólmundardóttir, Guðný Sigurjónsdóttir, Guðný Kristjánsdóttir, Jórunn Jónsdóttir, Jóhanna Margrét Agnarsdóttir, Jónast Eggert Ólafsson, Solveig Friðriksdóttir. Fundargerð ritar Solveig Friðriksdóttir 1. Skóladagatal fyrir skólaárið 2011-2012 kynnt. Engar athugasemdir gerðar við skóladagatalið. 2. Reglugerð um hlutverk skólaráðs í grunnskóla lesin að hluta. Meðal annars ræði skólaráð um skólareglur. Í framhaldi af því var rætt um símanotkun nemenda í skólanum sem er farin að trufla í kennslustundum. Samkvæmt reglum skólans er ekki leyfilegt að vera með gsm síma í skólanum og við höfum leyft þeim að vera með síma gegn því að þeir valdi ekki truflun. Það er farið að trufla í kennslustundum því nemendur eru að nota símana í kennslustundum og virða það ekki að ef menn eru beðnir um að láta þá vera. Í nágrannaskólunum er símanotkun ekki leyfð í skólum. Ákveðið að símar verði teknir af nemendum ef þeir sjást í kennslustund og þeir geti sótt þá á skrifstofu skólastjóra í lok skóladags. Einnig rætt um fartölvu og I-pod notkun. Oft fer tími í að koma sér fyrir með tölvuna þegar kennsla er að hefjast og tefur að kennsla komist í gang. Það truflar einnig þegar nemendur eru að hlusta á tónlist í tölvunum og eru að skipta um lög eða sýna öðrum eitthvað eða leyfa að heyra. Þarf að komast að ákveðnu samkomulagi með tölvunotkun. 3. Fjárhagsáætlun skólans. Sú sama og í fyrra í krónutölum en á móti kemur að ákveðnir þættir í rekstrinum hækka, s.s. rafmagn, húsaleiga og fleira. Það þrengist því að okkur annars staðar. Kennslustundum kemur eitthvað til með að fækka. Nemendum er líka að fækka og það tekur í hjá okkur. Fundi slitið 16:05
Mættir: Jónas Ólafsson, Solveig Friðriksdóttir, Guðný Sigurjónsdóttir, Guðný Kristjánsdóttir, Jórunn Dagbjört Jónsdóttir, Jóhanna Margrét Agnarsdóttir, Guðmundur Arnór Hreinsson, Rósmarý Dröfn, Sólmundardóttir, Ingibjörg Eyþórsdóttir Fundargerð ritar: Solveig Friðriksdóttir 1. Skólanámskráin (á linknum Starfsáætlun á síðu skólans)
Vegna veikinda síðustu vikna varð töf á því að klára námskrána. Því var ekki hægt að senda ráðsmönnum hana til yfirlestrar. Hvatt til að lesa hana yfir til umsagnar og koma með athugasemdir um hana.
Engar athugsemdir voru gerðar við þær breytingar sem kynntar voru á Skólanámskrá. 2. Námskrá
3. Viðbragðsáætlun v. svínaflensu kynnt. 4. Viðburðaáætlun fyrir Stöðvarfjörð og og Fáskrúðsfjörð sem send var í tölvupósti til foreldra 2.okt var kynnt. Oft hafa ýmsir viðburðir stangast á þegar verið er að skipuleggja hluti og gott að hafa áætlun uppi við. 5. Fundargerð Skólaráðs Fundargerð Skólaráðs verður alltaf birt á heimasíðu skólans. 6. Önnur mál Bent á að setja inn leiðbeiningar á heimasíðu skólans um það hvernig foreldrar geta fylgst með MSN notkun barna sinna. Fyrsti fundur í skólaráði 30. apríl 2009 Mættir: Jónas Ólafsson, Jóhanna Margrét Agnarsdóttir, Ingibjörg Eyþórsdóttir, Guðný Sigurjónsdóttir, Rósmarý Sólmundardóttir, Jórunn D. Jónsdóttir, Guðmundur A. Hreinsson, Ritari: Solveig Friðriksdóttir 1. Jónas kynnti Reglugerð um skólaráð við grunnskóla. 2. Drög að skóladagatali fyrir skólaárið 2009-2010 kynnt. Engar athugasemdir gerðar og skóladagatal samþykkt. 3. Heimasíða skólans. Starfsáætlun fyrir skólann kynnt og hvar hægt er að finna ýmsar nytsamlegar upplýsingar, t.d. skólareglur, eyðublöð varðandi leyfi, veikindi ofl. Allir kennarar hafa getað sett inn efni á heimasíðu skólans. Það gengur illa að koma efni inn og kom sú hugmynd að einhverjir ákveðnir sjái um að setja efni inn á hana. 4. Kennslustundir næsta skólaárs kynntar. Fyrirhugað er að fækka bekkjardeildum úr fjórum í þrjár. Þær bera nöfnin: Yngsta deild, Miðdeild og Elsta deild. Nemendum fækkar þar sem stór árgangur á okkar mælikvarða fer úr skólanum og fáir koma inn. Önnur mál: Tillaga frá foreldra að börn séu eingöngu með þær bækur í töskunum sínum sem nýta þarf til heimanáms. Töskurnar eru oft of þungar og verður að gæta að því vegna bakheilsu nemenda.
|


