Starry night
Við
| Ljós, speglar og linsur |
|
|
|
| Skrifað af Administrator | |||
| Þriðjudagur, 15 september 2009 14:30 | |||
|
Krakkarnir á Miðstigi fóru út í góða veðrið í dag með stækkunargler, spegla og ímyndunaraflið að vopni. Þau léku sér með sólarljósið en skemmtilegast var þó þegar þau uppgötvuðu að hægt er að kveikja eld með stækkunargleri og sólargeislum. Já, og að sjálfsögðu eldsneyti.
Miðstigið er að læra um ljós, spegla og linsur í bókinni Auðvitað I og því þótti tilvalið að nýta uppsprettu alls ljóss á jörðinni þegar það loksins sást. Ef smellt er á myndina hér fyrir neðan, má sjá fleiri myndir úr þessari kennslustund. Að sjálfsögðu skrifuðu nemendur svo skýrslu um ferðina og veltu fyrir sér hvers vegna það er hægt að endurvarpa ljósi eða safna því í lítinn, heitan punkt.
|


