Starry night
Við
| Vélfræði |
|
|
|
| Skrifað af Administrator | |||
| Fimmtudagur, 03 september 2009 15:14 | |||
|
Í vetur er kennd vélfræði við Grunnskólann á Stöðvarfirði. Þetta er í annað sinn sem það er gert en veturinn 2005 - 2006 var gerð tilraun með þessa námsgrein. Að þessu sinni er byggt á reynslunni sem þá fékkst en námsefnið lagað og bætt. T.d. er byrjað á grunnefni eins og efnisfræði málma og farið yfir hvar mismunandi málmar eru notaðir og hvar þeir koma við sögu í okkar daglega lífi.
Nemendum verður kennt að beita handverkfærum og þeir látnir taka í sundur og setja saman lítinn sprengihreyfil, t.d. úr sláttuvél eða orfi. Einnig verður farið yfir sögu og þróun véla frá fornöld til okkar daga. Vélfræðin er valgrein og einhverra hluta vegna, voru það bara strákar sem skráðu sig til þátttöku.
|


