Starry night
Við
| Vordagar 2010 |
|
|
|
| Skrifað af Administrator | |||
| Föstudagur, 21 maí 2010 09:57 | |||
|
Dagana 25. maí til 28. maí höldum við vordaga í Grunnskólanum á Stöðvarfirði. Farið verður í leiki, ferðalög og fjallgöngur; við gróðursetjum og að sjálfsögðu verður snætt. En dagskráin er annars á þessa lund: Þriðjudagur 25. maí: Heimsókn í Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum og Tækniminjasafn Austurlands á Seyðisfirði. Lagt verður af stað frá skólanum með langferðabifreið kl. 09:00 og áætluð heimkoma er kl. 14:15. Miðvikudagur 26. maí: Úti í Nýgræðingi gróðursetjum við plöntur, dreifum áburði og komum fyrir skiltum. Að því loknu verður farið í leiki og rifjaðir upp útileikir barna frá þeim tíma þegar orðið „tölvuleikur“ var ekki til. Fimmtudagur 27. maí: Gengið á Hrafnahnjúk. Föstudagur 28. maí: Þennan dag fer fram árlegt Balahlaup, reiðhjólakeppni og honum lýkur með grilli. Á myndinni hér að neðan, er Friðrik Júlíus á fleygiferð í hjólaþrautabrautinni á vordögum í fyrra.
|


